top of page

Upplýsingapakki fyrir COP27!

Updated: Nov 1, 2022


Kynnið ykkur allt um COP27 og fylgist með gangi mála með þessum upplýsingapakka Ungra umhverfissinna!


Hin árlega loftslagsráðstefna Sþ. er rétt handan við hornið. Í fyrra fór ráðstefnan (COP26) fram í Glasgow í Skotlandi, en í ár mun COP27 fara fram í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi.


Þessar ráðstefnur eru gríðarlega mikilvægar þar sem þetta er vettvangur sem gerir ríkjum heims kleift að samræmast um loftslagsaðgerðir á hnattrænum skala og vinna í sameiningu að sameiginlegum markmiðum. Það er ljóst að árangurinn hingað til hefur ekki verið nægur og er mikilvægt að metnaðurinn verði aukinn á ráðstefnunni í ár til að halda í möguleikan á að takmarka hlýnun Jarðar við 1.5 gráðu frá iðnbyltingu.


En loftslagsmálin geta verið flókin og það getur verið erfitt að átta sig á því hvað nákvæmlega þessar ráðstefnur snúast um, hvernig þær virka og hvað nákvæmlega er að gerast á þeim. Þess vegna höfum við tekið saman þennan upplýsingapakka í aðdraganda COP27 til að auðvelda ykkur að kynna ykkur málin og fylgjast með gangi mála næstu vikurnar.


Í þessum upplýsingapakka er að finna nýjustu skýrslur um loftslagsmál, alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, fréttagreinar um hvers má vænta af COP27, hlaðvörp, myndbönd, og fleira. Listinn sem við höfum tekið saman er alls ekki tæmandi en ætti að gefa aðgang að helstu upplýsingunum sem eru viðeigandi í aðdraganda COP27. Ef það er eitthvað sem við höfum gleymt að setja á listann og þið haldið að eigi heima þar megið þið endilega láta okkur vita með því að senda okkur tölvupóst (loftslagsfulltrui@umhverfissinnar.is).


Við vonum að upplýsingapakkinn komi að góðum notum og hlökkum til að deila okkar upplifun og þátttöku á COP27 með ykkur á samfélagsmiðlum okkar á næstu vikum!


Við mælum sérstaklega með þessu efni:


Skýrslur


  • Nýjasta skýrsla Milliríkjanefndar Sþ. um loftslagsbreytingar (e. IPCC)

  • Samantekt af nýjustu og bestu loftslagsvísindum sem gefur góða mynd af því hvar við stöndum þegar kemur að loftslagsbreytingum


  • Nýjasta skýrsla Umhverfisstofnun Sþ. um losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu

  • Þessi skýrsla er gefin út árlega og gefur hún mynd af því hversu stór bil er milli þeirrar losunar sem er líklegt að verði og kolefnisforðans sem við eigum eftir til að halda hlýnun Jarðar innan við 1.5 gráðu frá iðnbyltingu

  • Halldór Björnsson, hópstjóri á Veðurstofu Íslands um loftslagsmál, ræddi skýrsluna á Sprengisandi á Bylgjunni.


  • Samantekt og greining á landsframlögum allra landa til Parísarsáttmálans

  • Gefur mynd af því hvert við stefnum þegar kemur að loftslagsmálum (aðallega varðandi losun og hversu mikil hlýnun verður, en einnig varðandi aðlögun að loftslgasbreytingum)

  • Hér má sjá samantekt UNFCCC um skýrsluna


  • Ný skýrsla um stöðu loftslagsaðgerða á heimsvísu

  • Unnin sameiginlega af nokkrum stofnunum og samtökum (World Resource Institute, Climate Action Tracker, o.fl)


Hér má sjá fleiri loftslags-tengdar skýrslur frá Sþ.


Skýrslur sérstaklega tengdar Íslandi:


  • Formleg skýrsla Íslands til Rammasamnings Sþ. um loftslagsbreytingar (UNFCCC) um losun Íslands frá 1990 til 2020 (losunarbókhald Íslands)

  • Hér má finna upplýsingar um hvað nákvæmlega svona NIR skýrslur eru og hvers vegna þær eru mikilvægar


  • Alþjóðleg skuldbinding Íslands gagnvart Parísarsáttmálanum

  • Hér má finna upplýsingar um landsframlög (e. NDC) annara landa og hvað þetta fyrirbæri landsframlag er


Vefsíður


  • Heimasíða COP27


  • Heimasíða Rammasamnings Sþ. um loftslagsbreytingar

  • Hér er hægt að nálgast öll skjöl sem verið er að ræða á COP27 og endanlegu samþykktir ráðstefnunnar (frekar tæknilegt og ekki endilega auðvelt að skilja)

  • Einnig er hægt að sjá fréttir á þessari vefsíðu sem útskýra á einfaldara máli hvað er um að vera á ráðstefnunni


  • Óháð samtök sem taka saman og meta loftslagsaðgerðir landa víða um heim og setja upplýsingarnar fram á aðgengilegan hátt


Vefsíður tengdar Íslandi:


  • Hér má finna ýmsar upplýsingar um loftslagsmál á Íslandi, t.d. Aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum


  • Á þessari vefsíðu má finna ýmsar upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi

  • Hér er svo að finna bráðabyrgðaútreikninga Umhverfisstofnunar um losun Íslands árið 2021


  • Birna Sigrún Hallsdóttir sér um þessa vefsíðu og tekur hún saman ýmsan fróðleik um loftslagsmál og málefni hafsins á aðgengilegan hátt (t.d. má finna upplýsingar um losun og skuldbindingar Íslands ásamt samantekt hugtaka og orðskýringa)


Fréttagreinar


  • Samantekt frá Sþ. um hvers má vænta á COP27 og hvernig hægt er að fylgjast með gangi mála


  • Grein frá samtökunum The Nature Conservancy um hvað COP27 er, mikilvægi ráðstefnunnar og hverju má búast við


  • BBC fjallar um COP27 ráðstefnuna og mikilvægi hennar


  • Umfjöllun Guardian um COP27 og möguleg áhrif þeirra atburða sem hafa átt sér stað frá því COP26 var haldin í fyrra


Hlaðvörp


  • Vikulegt hlaðvarp um ýmis málefni tengd loftslagsbreytingum (ein spurning tekin fyrir í hverri viku og mismunandi sjónarhorn skoðuð á einföldu máli)

  • Líklegt að COP27 verði til umfjöllunar í hlaðvarpinu á næstu vikum


  • Vikulegt hlaðvarp þar sem fjallað er um loftslagsmál, yfirleitt út frá sjónarhorni stjórnmála (aðeins tæknilegra og flóknara hlaðvarp í samanburði við The Climate Question)

  • Einn þáttastjórnendana er hún Christiana Figueres sem var formaður UNFCCC 2015 þegar Parísarsáttmálinn var samþykktur

  • Líklegt að COP27 verði til umfjöllunar í hlaðvarpinu á næstu vikum


Myndbönd


  • Archie Young, formaður Bresku sendinefndarinnar til COP27 útskýrir stuttlega hvað samningafólk eins og hann gerir á slíkum ráðstefnum


Samfélagsmiðlar sem er gott að fylgjast með


Ungir umhverfissinnar (Instagram / Facebook)

  • Við verðum með regluleg innlegg bæði um okkar þátttöku á ráðstefnunni og um ganga málana á meðan COP27 stendur


Instagram:


Twitter:


Ítarefni


  • Ítarleg samantekt frá skipuleggjendum COP27 í samstarfi við ungt fólk um sögu loftslagsmála á vettvangi Sþ., hvernig svona ráðstefnur virka, og megin málefnin sem verða til umræðu á COP27


  • Ítarleg samantekt frá UNFCCC um vinnuna sem átti sér stað milli COP26 og COP27 (og hvers má vænta á COP27)


  • Minnisblað frá formanni undirnefndar COP um framkvæmd sáttmálana í aðdraganda COP27 (staða málana og hvers má vænta í þessum málaflokki á COP27)


  • Minnisblað frá formanni undirnefndar COP um tæknileg málefni í aðdraganda COP27 (staða málana og hvers má vænta í þessum málaflokki á COP27)


  • Aðalsamþykkt COP26 sem var haldin í Glasgow í nóvember 2021


  • Árið 2015 var þessi merkilegi sáttmáli samþykktur í París á COP21

  • Sáttmálinn kveður á um að takmarka skuli hlýnun Jarðar frá iðnbyltingu um 2 gráður, þó allra helst við 1.5 gráðu

  • Hér má finna upplýsingar um innihald Parísarsáttmálans og hvernig hann virkar


  • Árið 1992 varð þetta fyrsti samningurinn um loftslagsmál sem var samþykktur á vettvangi Sþ. og byggir núverandi starf um loftslagsmál á vettvangi Sþ. enn á þessum grunn samningi



Þessi upplýsingapakki var unnin af Finni Ricart Andrasyni, loftslagsfulltrúa Ungra umhverfissinna. Fyrir athugasemdir, vinsamlegast sendið töluvpóst á loftslagsfulltrui@umhverfissinnar.is.

bottom of page