top of page

Kröftug ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin

  • Apr 12
  • 3 min read

Ungir umhverfissinnar kynna með stolti nýja stjórn félagsins, sem var kjörin á líflegum aðalfundi þann 11. apríl síðastliðinn. Samtökin líta aftur á eitt sitt öflugasta starfsár til þessa og horfa björtum augum til komandi verkefna. Nýja stjórn skipa:


Forseti: Laura Sólveig Lefort Scheefer

Varaforseti: Jóhanna Malen Skúladóttir

Gjaldkeri: Sólborg Birgisdóttir

Fræðslufulltrúi: Isla Sweet

Hringrásafulltrúi: Matei Filip Popescu

Loftslagsfulltrúi: Ivana Mišíková

Náttúruverndarfulltrúi: Ísak Ólafsson

Samskiptafulltrúi: Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir

Aðalfundurinn fór fram í Grósku og var líflegur og vel sóttur. Þar voru ársskýrsla og ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2025-26 samþykkt, titlinum ungi umhverfissinni ársins úthlutað auk þess sem ný stjórn var kjörin. 


Reyndur forseti leiðir starfið áfram

Laura Sólveig Lefort Scheefer var endurkjörin forseti félagsins. Laura hefur víðtæka reynslu af umhverfismálum úr atvinnulífi og alþjóðastarfi. Hún er menntuð í umhverfisfræði, er ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála og situr því í sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnum SÞ COP30, SB64 og COP31 ásamt því að vinna sem verkefnastjóri hjá alþjóðasamtökunum Fossil Fuel Treaty Initiative.


Helstu verkefni og hápunktar starfsársins 2025-2026

Á liðnu starfsári óx félagið áfram og telur nú um 1720 félaga. Sýnileiki okkar og vægi í almennri umræðu hefur sjaldan verið meiri og komum við fram í fjölmiðlum 41 sinnum á starfsárinu. Einnig voru haldnir 36 viðburðir og unnin rúmlega 50 blaðsíðna umsagnaskrif um alls kyns frumvörp og aðra opinbera texta. Ráðist var í fjölmörg verkefni sem skiluðu miklum árangri og má þar nefna sem dæmi:


  • Vinnustofuröðin Hafið á hundavaði var haldin um allt land þar sem þátttakendur fræddust um lífríki hafsins og settu fram eigin tillögur að verndarsvæðum í sínum landshluta.

  • Í samstarfi við Háskólalestina og Háskóla unga fólksins var námskeiðið Kórallar Íslands haldið, þar sem grunnskólabörnum var boðið upp á lifandi fræðslu um undur hafsins og mikilvægi verndunar þess. 

  • Handbók um Hafið var gefin út í ársbyrjun 2026. Til að styrkja almenna haffræðslu og þekkingu voru fyrstu 100 eintökin gefin skólum og stofnunum víðsvegar um landið.

  • Fræðsla og tínsla á villtum jurtum í Elliðarárdalnum með Arfistanum sem fékk úthlutun í Loftslagssjóði ungs fólks í Reykjavík 2025 

  • Vinnustofa um orkulausnir var haldin í HR og fékk úthlutun í Loftslagssjóði ungs fólks í Reykjavík 2025

  • Verkefnið Be a Good Tourist þar sem búið var til fræðsluefni og myndbönd fyrir túrista á Íslandi til að hvetja þá til sjálfbærari háttalags á ferð sinni um landið, aðgengilegt á heimasíðu UU, fékk einnig úthlutun í Loftslagssjóði ungs fólks í Reykjavík 2025

  • Einn fjölmennasta viðburður ársins var Loftslagsfestivalið á Menningarnótt, sem skipulagt var í samstarfi við Aldin, Dýraverndarsamband Íslands og Landvernd. Hátíðin fór fram í Smekkleysu þar sem boðið var upp á fjölbreytt tónlistaratriði, kynningar listafólks á sjálfbærum verkum og hvetjandi ræðuhöld. 

  • Ungir umhverfissinnar hjálpuðu til við gerð fyrstu samnorrænu yfirlýsingar ungs fólks í loftslagsmálum sem forseti félagsins afhenti Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á COP30, loftslagsráðstefnu Sþ. í Bélem, Brasilíu,, síðastliðinn nóvember.

  • Ákall um bann við hvalveiðar, sjókvíaeldi og djúpsjávarnámuvinnslu, unnið í samstarfi við önnur samtök sem vakið hefur mikla athygli.

  • Auk þess má nefna regluleg greina- og umsagnaskrif, fundi með hagaðilum og fjölda erinda og viðburða (sjá ítarlega umfjöllun í ársskýrslu 2025-26 hér).


Fráfarandi stjórn þakkar fyrir sig, stolt af árangri líðandi starfsárs. Ný stjórn mun hafa í nógu að snúast og tekur galvösk við keflinu. Á döfinni eru m.a. pallborðsumræður við frambjóðendur í sveitarstjórnarkosningum um umhverfis- og loftslagsmál sumardaginn fyrsta, ráðstefna um plastmengun í Atlantshafi og undirbúningur á verkefninu Tunglið. Við munum halda ótrauð áfram okkar baráttu fyrir náttúruvernd, loftslagsaðgerðum og lífvænlegri framtíð fyrir ungt fólk og framtíðarkynslóðir. 


Með þökk og baráttukveðju, f.h. stjórnar,

Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti Ungra umhverfissinna


 
 
 

Comments


Allir ungir umhverfissinnar sem aðhyllast markmið og stefnu félagsins geta skráð sig og það kostar ekkert. Með skráningu getur þú m.a. tekið þátt í nefndastarfi og annarri hagsmunagæslu Ungra umhverfissinna.

ungir@umhverfissinnar.is

Kt. 5104130240

Bankareikningur: 0115-26-010488

  • Instagram
  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube
bottom of page