top of page

Óskað eftir meðstjórnendum í nefndir

Nú höfum við opnað fyrir umsóknir til meðstjórnunar í nefndirnar okkar. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, hvort sem þið eruð gömul, ung, reynslumikil eða -lítil. Þetta er tilvalið sem fyrsta hlutverk innan Ungra umhverfissinna. Allir félagar eiga fullt erindi í stjórn hverrar einustu nefndar og tökum við öllum umsóknum fagnandi. Nefndarstörf eru frábær leið til að kynnast starfinu og hafa áhrif í samfélaginu.

Auðvitað er enn hægt að vera óbreyttur nefndarmeðlimur í nefndum, en þetta er ætlað fyrir þau sem vilja stærra hlutverk innan nefndanna og UU.

Umsóknarfrestur er til 10. maí.


Ef þú hefur frekari spurningar, eða ert óviss um eitthvað, endilega sendu okkur skilaboð:

Varaformaður UU: Egill Ö. Hermannsson,[varaformadur@umhverfissinnar.is]


Nefndir UU og formenn þeirra eru: -Loftslagsnefnd: Finnur Ricart Andrason, [loftslagsfulltrui@umhverfissinnar.is] -Náttúruverndarnefnd: Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, [natturuverndarfulltrui@umhverfissinnar.is] -Hringrásarhagkerfisnefnd: Alma Stefánsdóttir, [hringrasarhagkerfisfulltrui@umhverfissinnar.is] -Kynningar- og fræðslunefnd: Unnur Björnsdóttir, [kynningarfulltrui@umhverfissinnar.is]


Sækið um hér: https://forms.gle/aHKpSDBPt3pxNNxZ8 fyrir 10. maí!

bottom of page