Framboð í stjórn UU 2025
- fifa8515
- Apr 23
- 4 min read
Updated: Apr 30

Kosið verður í nýja stjórn Ungra umhverfissinna á aðalfundi félagsins 3. maí n.k. Hægt er að bjóða sig fram í gegn um þetta form eða á fundinum sjálfum. Hér fyrir neðan birtum við jafn óðum þau framboð sem berast í gegn um formið.
Frekari upplýsingar um aðalfund Ungra umhverfissinna 2025 má finna hér.
FRAMBOÐ Í STJÓRN UNGRA UMHVERFISSINNA 2025:
Laura Sólveig Lefort Scheefer býður sig fram í embætti forseta.
Heil og sæl! Ég heiti Laura og er 25 ára umhverfisfræðingur og umhverfissinni 🌎 Sem hringrásarfulltrúi Ungra Umhverfissinna á síðasta starfsári hef ég séð af eigin raun hversu öflugt og mikilvægt starf okkar er. Nú vil ég leggja mitt af mörkum enn frekar og býð mig því fram í embætti forseta UU. Ég hef víðtæka reynslu af teymisstjórn og félagastarfi, meðal annars sem formaður Femínistafélagsins í MH, teymisstjóri hjá AIESEC, í stjórn AFS á Íslandi, og nú sem leiðtogi hringrásarnefndar UU. Auk þess hef ég lokið gráðu í umhverfisfræði, tekið þátt í rannsóknum á sviði náttúruverndar og hringrásarmála, unnið að sjálfbærni í atvinnulífinu og verið hluti af íslensku sendinefndinni á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Á liðnu ári í stjórn hef ég lært ómetanlega margt – bæði af ykkur og af starfinu sjálfu. Ég er þakklát fyrir allt sem við höfum skapað saman, gífurlega stolt af þeim árangri sem við höfum náð og full af eldmóði yfir því sem við getum áorkað í framtíðinni. Það væri mér sannur heiður að fá að leiða þetta starf áfram með ykkur á næsta stjórnarári ❤️
Snorri Hallgrímsson býður sig fram í embætti varaforseta.
Sæl verið kæru umhverfissinnar. Ég býð mig fram til varaformanns UU því ég tel starfi mínu innan samtakana ekki lokið. Ég hef ásamt hefðbundnum stjórnarstörfum setið fyrir hönd UU í ráðgjafanefnd Norrænu ráðherranefndarinnar og hagsmunaráði Úrvinnslusjóðs. Hef ég við störf mín fyrir félagið byggt upp þekkingu sem mig langar að halda áfram að auka við sem ég held áfram að leggja mitt að mörkum við að auka mátt félagsins og meginn. Ég er þessutan upprunalega frá Húsavík, með B.Sc. gráðu í heilbrigðisverkfræði og starfa sem sérfræðingur í vöruþróun fyrir Össur. Samhliða fer ég með sæti Íslands í Evrópskum og alþjóðlegum staðlanefndum.
Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir býður sig fram í embætti gjaldkera
Ég er 25 ára að leggja lokahönd á meistaranám mitt í lögfræði við Háskóla Íslands. Ég hef mikla reynslu af nefndarstörfum, bæði í gegnum menntaskóla- og háskólaárin en nú er komið að því að snerta á mikilvægu málunum sem umhverfismálin eru. Umhverfismál eru mér afar mikilvæg og ég vona að með framlagi mínu í ungum umhverfissinnum geti ég látið gott af mér leiða.
Jóhanna Malen Skúladóttir býður sig fram í embætti náttúruverndarfulltrúa
Ég ólst upp í Hallormsstaðaskógi og hef alltaf verið voðalegt náttúrubarn. Eyddi sumri sem landvörður á miðhálendinu og þá varð ekki aftur snúið. Ég vinn núna sem náttúruvársérfræðingur á veðurstofunni og finnst þess utan uppá fjalli eða prjónandi úti í horni. Á síðastliðnu ári hef ég tekið nokkuð virkan þátt í stjórn UU sem vara-náttúruverndarfulltrúi, og hef lært mikið af því. Ég hlakka til að taka til hendinni á komandi stjórnarári og setja náttúruna áfram í fyrsta sæti.
Antonia Hamann býður sig fram í embætti hringrásarfulltrúa
Hey, I’m Antonia, a 28-year-old girl who’s been a co-chair member of the Circular Economy Committee for the past two years. I’m super passionate about circular economy – I even wrote my Master’s thesis on it! I love working with other young, like-minded people who care about making a difference. This year, I’d love to step up and lead the committee, keep our cool projects going, and kick off some new ones with all of you!
Valentina Klaas býður sig fram í embætti hringrásarfulltrúa
I care deeply about finding practical, realistic ways to make sustainability a bigger part of everyday life. I’m still learning and growing in this field, but I bring a lot of enthusiasm, curiosity, and a genuine drive to contribute. As a circular representative, I hope to support projects that make a real difference, even in small ways, and to keep building momentum for positive change.
Julien Nayet-Pelletier býður sig fram í embætti fræðslufulltrúa
My name is Julien Nayet-Pelletier and I'm French-Canadian from Winnipeg, Manitoba. I have a background in Biology and Edication and I combine these skills into Science Communication, which is my passion. I love teaching the public about the environment, specifically the roles of insects in their ecosystems. I teach as a tour guide and through my web series Julien Looks Under Things. I didn't expect to land in Iceland, having followed my partner there who's persuing her studies, but I'm having a great time learning and teaching here!
Valentina Klaas býður sig fram í embætti fræðslufulltrúa
Think of nature as our parent: it feeds us, heals us, inspires us, and asks very little in return. As David Attenborough wisely said, "No one will protect what they don't care about; and no one will care about what they have never experienced." I’d love to help more people reconnect with the natural world in a way that feels more relatable, and maybe even a little magical. Because when we understand how nature weaves into every part of our lives, from our health to our happiness, protecting it stops feeling like a chore and starts feeling like common sense.
Esther Jónsdóttir býður sig fram í embætti samskiptafulltrúa
Ég er umhverfisstjórnmálafræðingur og jöklaleiðsögumaður sem brenn fyrir umhverfismálum. Ég var meðstjórnandi í fræðslunefnd UU 2024-2025 og var starfskraftur Sólarinnar fyrir þingkosningarnar 2021 og 2024. Ég hef verið virkur félagsmeðlimur UU í þónokkur ár og hef sinnt ýmsum öðrum verkefnum á vegum félagsins t.d. skrifað greinar og pistla fyrir fjölmiðla, setið í ritstjórn bókverksins Spírur, komið fram á ráðstefnum og sinnt fræðslukynningum í framhaldsskólum. Það væri sönn ánægja að taka sæti í stjórn á komandi tímabili í hlutverki samskiptafulltrúa og gera umhverfismálum hátt undir höfði í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.
Ida Karólína Harris býður sig fram í embætti loftslagsfulltrúa
Ég hef verið virk í UU og loftslagsmótmælunum á föstudögum síðan 2019. Mig langar til að leggja ennþá meiri áherslu á loftslagsmótmælin og á að vald efla ungt fólk til að láta skoðanir sínar heyrast.
Unnar Aðalsteinsson býður sig fram í embætti varafulltrúa stjórnar
Ég hef setið í Náttúruverndarnefnd UU í eitt ár. Nem líffræði við háskóla Íslands. Ég er með landvarðaréttindi og hef starfað sem slíkur í 3 (að verða 4) sumur. Stoltur Héraðsbúi.
Comentários